Lýstu fyrirtækinu.Model hannarvefsíðuna.
Gervigreind sem vinnur eins og hönnunarstofa: einstök hönnun fyrir þinn rekstur, texti á vandaðri íslensku og fullbúin síða á nokkrum mínútum.
Fagleg síða frá 5.900 kr. / mán.
- Einstök hönnun, ekki sniðmát
- Texti á íslensku
- SEO & AI-sýnileiki
- Full stjórn á síðunni

Hönnunarvélin
Ekki sniðmát.
Hönnun fyrir þig.
Flestir vefsmiðir gefa þér sniðmát og biðja þig að fylla í eyðurnar. Model vinnur eins og hönnunarstofa: gervigreindin les lýsinguna, teiknar upp þrjár ólíkar stefnur og smíðar síðuna utan um þá sem þú velur.
Eitt kaffihús, þrjár stefnur — smelltu til að skoða síðurnar.
Handverk
Instrument Serif · Karla
Hlýtt og áþreifanlegt — leirlitir, ítalískt serif og pappírskorn eins og í góðu kaffihúsi.
Sýningarsalur
Libre Baskerville · Work Sans
Mínímalískt og bjart — espressobrúnn texti, klassískt serif og mikið rými utan um matinn.
Sýra
Bricolage Grotesque · DM Sans
Risastórt letur, svart á beinhvítu og einn súr límónulitur — kaffibrennsla með skoðanir, ekki enn eitt notalega hornið.
- 01
Listrænn stjórnandi
Les lýsinguna og velur leturpar, litakerfi sem stenst birtuskil, form, takt og myndstíl — fyrir þinn rekstur, ekki meðaltalið.
- 02
Skipulag kafla
Raðar síðunni eftir því sem viðskiptavinir þínir leita að: matseðill fremst á kaffihúsi, verð og bókun á stofu, símanúmer hjá pípara.
- 03
Einkenniskafli
Hver síða fær einn kafla sem er hannaður sérstaklega fyrir hana — ferli, saga, tölur eða yfirlýsing — svo hún líti ekki út eins og hinar.
- 04
Þú velur og fínstillir
Veldu stefnuna sem talar til þín. Allt má svo laga á mannamáli: „gerðu þetta hlýrra", „stærra letur", „dekkri bakgrunnur".
Hannað fyrir þitt fag
Sama hvaða fag þú ert í — Model byggir síðu sem passar.
Hver grein fær sína eigin hönnun — litir, letur og uppsetning sem passa rekstrinum. Veldu fag, lagaðu lýsinguna og sjáðu hvað Model gerir úr henni.
Sjáðu hvernig Model virkar
Frá hugmynd yfir í síðu á nokkrum mínútum.
Þú lýsir fyrirtækinu með nokkrum setningum, velur eina af þremur hönnunarstefnum og Model smíðar fullbúna síðu með texta, myndum og bókunum sem þú getur birt strax.
- 1Lýstu fyrirtækinu
- 2Veldu hönnun
- 3Model smíðar síðuna
Inni í kerfinu
Allt á sínum stað, frá fyrsta degi og áfram.
Þegar síðan er komin í loftið tekur daglegi reksturinn við. Í Model finnurðu allt sem þú þarft til að breyta efni, svara fyrirspurnum, skipuleggja bókanir og halda síðunni sýnilegri — án þess að flakka á milli kerfa.

Lifandi ritill
Sjáðu breytingarnar á sama augnabliki.
Þú þarft ekki að hoppa á milli stillinga, forskoðunar og útgáfu. Í Model vinnurðu beint á síðunni sjálfri og sérð texta, kafla, myndir og takka uppfærast á meðan þú vinnur.
- Smellir á efnið sem þú vilt laga, ekki á flókið stillingakerfi
- Breytingar birtast strax án þess að endurhlaða síðuna
- Auðvelt að halda heildarútliti og takti samræmdum

AI aðstoð í samhengi
Biddu um breytingu á mannamáli.
Þú getur beðið Model að stytta texta, gera tóninn faglegri, bæta við nýjum kafla eða laga útlitið án þess að skrifa það allt sjálf/ur. AI-aðstoðin vinnur beint út frá því sem er valið á síðunni.
- Virkar á texta, köflum og uppsetningu í stað tóms spjallglugga
- Gott fyrir stuttar lagfæringar sem annars taka marga smelli
- Heldur samhengi svo niðurstaðan passar síðunni sem fyrir er

Texti og efni
Skrifaðu hraðar án þess að fórna gæðum.
Hvort sem þú ert að semja forsíðutexta, þjónustulýsingu, tilboðssíðu eða bloggfærslu færðu drög sem eru skýr, læsileg og auðveld að laga áfram. Þetta sparar tíma án þess að textinn verði vélrænn.
- Endurskrifa, stytta, lengja eða laga tón með einni skipun
- Drög á íslensku sem þú getur fínstillt áfram í ritlinum
- Hentar jafnt fyrir vefsíður, bloggfærslur og kynningartexta

Myndir og útlit
Myndir og útlit sem vinna saman.
Hönnunarstefnan — litir, leturpar, form og myndstíll — gildir um alla síðuna. Þegar þú bætir við kafla, skiptir um mynd eða biður um „hlýrra útlit" fylgir allt með, svo þú þarft aldrei að laga stíl handvirkt á hverri síðu.
- Samræmt útlit frá hero niður í fót á öllum síðum
- Myndir sem passa við tón og þjónustu fyrirtækisins
- Prófaðu nýjan lit eða stíl — kaflarnir fylgja sjálfkrafa með

Bókanir og fyrirspurnir
Viðskiptavinir ná beint til þín.
Bókunarform, tímabeiðnir og fyrirspurnir detta í sama pósthólf — líka þegar þú sefur. Þú svarar, samþykkir eða afboðar á einni síðu og viðskiptavinurinn fær staðfestingu sjálfkrafa í tölvupósti.
- Bókanir með dagatali, opnunartímum og áminningum
- Fyrirspurnaform sem lenda í einu pósthólfi fyrir allar síður
- Sjálfvirkur svarpóstur og útflutningur í CSV þegar þarf

SEO og sýnileiki
Finnanleg þegar einhver leitar.
Kerfið sér um tæknina sem Google byggir á — sitemap, meta-lýsingar, structured data og OG-myndir — svo þú getir einbeitt þér að efninu. Innbyggt SEO-heilsumat bendir á smáatriði sem má skerpa og hjálpar þér að raðast ofar í leit.
- Sjálfvirkt sitemap og meta-tög sem uppfærast með efninu
- Structured data fyrir fyrirtækjaskráningu og Google Maps
- SEO-heilsumat sem bendir á það sem má laga

Tölfræði og gestir
Skilur hvernig síðan þín stendur án flækjustigs.
Heimsóknir, vinsælustu síður, hvaðan gestir koma og hvaða tæki þeir nota — birt í einu skýru yfirliti inni í ritlinum. Þú þarft ekki að setja upp Google Analytics, bætir engum cookie-borðum á síðuna og hefur aðeins aggregat-tölur sem er auðvelt að lesa.
- 30 daga yfirlit með samanburði viku fyrir viku
- Vinsælustu síðurnar og hvaðan gestir koma (Google, Instagram, bein umferð)
- Engin persónugögn eru skráð — virðir friðhelgi gesta sjálfgefið
Systurkerfi
Þarftu netverslun? Við höfum lausnina.
Cartico er systurkerfi Model, smíðað frá grunni fyrir fullkomna íslenska netverslun. Sama einfalda vinnuflæðið og ritillinn sem þú þekkir — en með greiðslugáttum, bókhaldssamþættingu og lagerhaldi á einum stað.
Skoða cartico.com (opnast í nýjum flipa)Greiðslugáttir
íslenskar og erlendar
Bókhald
sjálfvirk samþætting
Lagerhald
birgðir og pantanir
Flutningar
sendingar og merkingar
Ókeypis verkfæri
Ekki tilbúin
með nafnið eða
lógóið enn?
Byrjaðu á grunninum. Notaðu AI-verkfærin okkar til að finna nafnið, athuga fyrirtækjaskrá og lén, og smíða fyrsta lógóið — allt ókeypis, engin skráning.
Skoða öll verkfæriNafnasmiðjan
AI-nafnasmiður með strax availability-athugun
24 nafnatillögur á íslensku, með live staðfestingu hjá fyrirtækjaskrá Skattsins, .is léni og Instagram.
Lógósmiðjan
Tugir smart templates — velur lit, letur og tákn
Fáðu dusins af flottum lógóum sem þú getur sérsniðið og halað niður sem SVG á sekúndum.
Saga íslenskra fyrirtækjaeigenda
Treyst af þúsundum.
Ég átti hugmyndina í kaffihléinu, byrjaði eftir kvöldmat og var komin með virka síðu fyrir svefninn. Þetta hefði tekið mig margar vikur og hundruð þúsundir annars staðar.
Þórdís
Hárgreiðslumeistari
"Í hverri viku spyr ég Model um eitthvað nýtt — nýtt blogg, ný mynd, nýtt form. Það er eins og að vera með markaðsdeild í vasanum."
"Ég skildi ekki SEO. Núna er ég á fyrstu síðu Google fyrir "pípari Reykjavík" — og Model sá um allt."
"Ég þarf ekki hönnuð, ritara og bókhaldara. Ég hef Model. Það er viðskiptafélagi sem sefur aldrei."
Einföld verðskrá
Eitt verð, allt innifalið.
Frá
á mánuði — per síða· án VSK
Fyrstu 7 dagarnir eru ókeypis. Engin kreditkort, engin binding.
- Ótakmarkaðar breytingar
- AI textar og myndir
- SEO, analytics, backups
- Tímabeiðnir + pósthólf
- Íslensk þjónusta
- Engin binding
Spurt & svarað
Algengar spurningar.
Skýr svör við því sem flestir vilja vita áður en þeir byrja: hvernig þetta virkar, hvað fylgir með og hvað það kostar.
Hvað er Model nákvæmlega?
Þarf ég að kunna á vefsíðugerð eða hönnun til að nota þetta?
Verða ekki allar síðurnar eins?
Er þetta bara fyrir ákveðnar iðngreinar?
Er efnið á íslensku?
Hvað kostar áskriftin?
Þarf ég að setja inn kreditkort til að prófa?
Get ég notað eigið lén?
Hvað er innifalið í áskriftinni?
Fæ ég hjálp ef ég lendi í vandræðum eða vil fá ráð?
Byrjaðu núna · Ókeypis í 7 daga
Síða í kvöld.
Fyrirtæki á morgun.
Lýstu fyrirtækinu þínu — Model skilar fullbúinni síðu, texta, myndum og bókunarformi á innan við 30 sekúndum.
Prófaðu frítt · Hættu hvenær sem er · Íslensk þjónusta
